Sagan
Meginmarkmið okkar er að veita þér þá bestu þekkingu sem tiltæk er hvort sem er í formi fræðslu eða ráðgjafar. Við höfum starfað samfellt frá árinu 1986 og frá árinu 1987 verið til húsa í eigin húsnæði á Grensásvegi 16 í Reykjavík. Alls hafa 42.500 manns (september 2011) sótt námskeið okkar frá upphafi og hundruðir fyrirtækja leitað ráðgjafar okkar um upplýsingatækni og fjarskipti. Tölvu- og verkfræðiþjónustan ehf hefur frá upphafi verið í eigu Halldórs Kristjánssonar, verkfræðings.
STARFSFÓLK
Hjá Tölvu- og verkfræðiþjónustunni vinna vel menntaðir starfsmenn með mikla þekkingu á þeim verkefnum sem þeir vinna hvort sem er í kennslu eða ráðgjöf. Við leggjum mikla áherslu á að starfsmenn okkar viðhaldi þekkingu sinni með lestri bóka og tímarita ásamt því að sækja námskeið og ráðstefnur.
STAÐSETNING
Á þessu korti er sýnt hvar við erum staðsett í Reykjavík. Næg bílastæði eru bak við húsið og frá bílastæðunum er gengið beint inn í aðalbygginguna og inn til okkar en skrifstofur okkar og kennslustofur eru á sömu hæð og bílastæðin.